Gullmerki MFK

Á síðustu árum hefur verið unnið að sérstakri reglugerð um notkun merki félagsins. Reglugerðin gildir fyrir notkun merki MFK ( gull – silfur – brons) við merkingu, auglýsingu og kynningu matvæla sem unnið hafa til verðlauna í fagkeppni Meistarafélags kjötiðnaðarmanna. Þær setja skýrar reglur fyrir notkun á merkinu, merkingu og markaðssetningu, auk þess sem hún tryggir rétta notkun merkisins. þ.e. grafíska hönnun og lit. Einnig að varan sé sú sama og vann til verðlaunanna. Allar nánari upplýsingar veitir stjórn félagsins.

BESTA SKINKA ÍSLANDS

 

Meistarafélag kjötiðnaðarmanna heldur nú í fyrsta sinn keppnina ,,Besta skinka Íslands 2018”.  Keppnin hefst á haustdögum (október) 2017.  Keppnin er tvískipt annarsvegar er forkeppni og hinsvegar aðalkeppnin.

Forkeppni (fyrri hluti) ,,Besta skinka Íslands 2018  haldin í október 2017.
Aðalkeppni (seinni hluti)  haldin í febrúar 2018.

Þátttakendur
Starfandi kjötvinnslur/kjötbúðir og öll matvælafyrirtæki með tilskilin leyfi.

Innsendar vörur verða dæmdar í forkeppni sem fer fram í október  2017, þar sem 6 dómarara frá MFK  munu dæma vörurnar
Innsendar vörur verða dæmdar eftir fagmennsku, bragði og útliti.
Dómarar velja þrjár bestu skinkunar sem fara svo áfram í aðalkeppnina sem fram fer á meðal almennings í Hörpunni í febrúar 2018.  En þar verður bragð í forgrunni.
Úrslit verða síðan kynnt á MFK deginum 10.mars 2018.
Þeir þátttakendur sem komast í úrslit og eiga þrjár bestu vörurnar úr forkeppninni fá tilkynningu um það strax að aflokinni forkeppninni.
.

Fagkeppni MFK

Meistarafélag kjötiðnaðarmanna heldur nú í þrettánda sinn fagkeppni kjötiðnaðarmanna.

Keppnin verður haldin í Hótel og matvælaskólanum í Kópavogi 8 – 9. mars 2018.

Hverjum keppanda er heimilt að senda allt að 10 vörur til keppninnar, þó með þeim takmörkunum að vörurnar mega ekki vera eins í gerð, útliti eða nafni. Keppnisreglur auk nánari upplýsinga um fyrirkomulag verður sent út síðar.

Nánari upplýsingar veita:

Þorsteinn Þórhallsson sími 897-4441 steini@isfugl.is, formaður fagkeppnisnefndar

Ingólfur Baldvinsson sími 896- 8648 ingibald@simnet.is

Sigurfinnur Garðarsson sími 897- 5947 kras1@simnet.is

Arnar Sverrisson sími 840-2304 arnarsv@simnet.is

Löggilding iðngreina

Kjötiðn er löggild iðngrein, skv. iðnaðarlögum og reglugerð um löggiltar iðngreinar. Löggildingin þýðir að starf og starfsheiti í greininni eru lögvernduð, sbr. nánari skýringar hér að neðan. Rétt til starfa í greininni hafa meistarar, sveinar og nemendur í iðngreininni, sbr. 8. gr. iðnaðarlaga.

Sjá nánar